Auction

THIS AUCTION HAS ENDED 

JS Watch co. Reykjavik, Eggert Pétursson and Erró Online fundraising Auction for Kraftur

erro_eggert.png
is.jpg

Úrauppboð til styrktar Krafti (www.kraftur.org)

Fylgstu með vefuppboðinu hér

Skráið ykkur hér til að fá tilkynningu þegar 3 dagar eru eftir af uppboði


Íslenski úraframleiðandinn JS Watch co. Reykjavik og tveir af fremstu listamönnum þjóðarinnar Erró og Eggert Pétursson tóku höndum saman til þess að leggja Krafti stuðning.

Það var árið 2010 sem hugmyndin kviknaði hjá eigendum og framleiðendum JS Watch co. Reykjavik úranna að fá til liðs við sig fremstu listamenn þjóðarinnar til að skapa eitthvað alveg sérstakt og leggja það fram sem stuðning við Kraft, stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra.

Hugmyndin sem lögð var fyrir listamennina var að fá þá til að skreyta skífur tveggja glæsilegra Islandus úra frá JS Watch co. Reykjavik ásamt öskjunni utan um úrin og skapa þannig glæsileg listaverk sem ekki eiga sér hliðstæðu hér á landi. Því næst að halda uppboð á úrunum með það fyrir augum að safna peningum til styrktar Krafti þar sem allur ágóði af uppboðinu rennur óskertur til Krafts.

Nú rúmu ári síðar er afrakstur þessa samstarfs tilbúinn, tvö glæsileg úr og öskjur sem skarta listaverkum Erró og Eggerts Péturssonar og er því um afar sérstaka skartgripi að ræða sem munu án efa vekja eftirtekt og aðdáun um ókomna tíð.

Hér er um einstakt tækifæri fyrir safnara og áhugamenn að eignast afar sérstaka safngripi og það er óvíst að tækifæri til þess að eignast svona verk gefist aftur.

Uppboðinu er lokið.

uk.jpg

Auction to raise funds for KRAFTUR  (www.kraftur.org)

View auctions here

Sign up here to receive a notification when 3 days are left of the auction


Icelandic watch manufacturer JS Watch co. Reykjavik and two of the most prominent artists in Iceland, Erró and Eggert Pétursson have joined together in order to support KRAFTUR.

In 2010 the owners of JS Watch co. Reykjavik got the idea to ask the most prominent artists in Iceland to join with them in order to create something very special and to make the outcome of that creative work their contribution to KRAFTUR, a society to support young people who have been diagnosed with cancer, and their relatives.

The idea which was presented to the artists was to have the artists design the ornaments for the dials on two magnificent Islandus wristwatches from JS Watch co. Reykjavik and also to design the ornaments on the accompanying two single watch boxes and thus be able to create a pair of magnificent and unique works of art that would be unequalled in Iceland. The next step was to hold an auction sale of these two watches with the intent to raise funds to support KRAFTUR where the entire proceeds will go to KRAFTUR.

And today little more than a year later the result of this collaborative project is ready: two magnificent watches and two boxes adorned with artworks by Erró and Eggert Pétursson. As a result these pieces of art are very unique ornaments which will undoubtedly attract attention and admiration in the future.

This is a very rare opportunity for collectors and connoisseurs of fine watches and art to acquire unique collectors´ items. 

The Auction has ended.
 
ERRÓ Special Edition Watch

erro_thumb.jpgView / Skoða

 
Eggert Pétursson Special Edition Watch

eggert_thumb.jpg

    View / Skoða